Íþróttakonur á Ólympíuleikunum

Undanfarið hefur mikið verið rætt um íþróttakonur á Ólympíuleikunum: hvort íþróttakonur hafi „of mikið“ testósterón eða séu trans eða intersex og þar af leiðandi með forskot á aðrar íþróttakonur. Því miður er þetta ekki í fyrsta skipti sem kyn íþróttakvenna er tortryggt. Þessi umræða birtist reglulega í kringum íþróttaviðburði kvenna.

Sum sem tjá sig um þetta segja að þau séu að vernda konur í íþróttum og þetta snúist um sanngirni. Þrátt fyrir góðan ásetning getur þessi umræða verið mjög skaðleg og jafnvel ógnað öryggi kvenna. Orðrómur um að vera trans eða intersex getur leitt til ofsókna, félagslegrar útskúfunar eða jafnvel ofbeldis - sérstaklega þar sem réttindi og öryggi trans og intersex einstaklinga eru ekki tryggð - hvort sem orðrómurinn er réttur eða rangur.

Umræðan ýtir undir staðalímyndir og fastmótaðar hugmyndir um hvað það þýðir að vera kona. Þessar hugmyndir tengja oft kvenleika við ákveðin útlitseinkenni og nú líka hormónastarfsemi. Þessi umræða bitnar ekki bara á konunum sem eru í brennidepli hverju sinni, trans eða intersex konum, heldur líka sís konum, sem passa ekki í þröngan ramma þessara hugmynda. Þetta eru hugmyndir um hvernig konur eiga að líta út eða haga sér, sem getur haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd þeirra sem passa ekki í þessar staðalímyndir.

Þessi orðræða gerir líka lítið úr árangri kvenna í íþróttum og gefur til kynna að kona geti aðeins verið kraftmikil eða öflug ef hún er karlmaður.
PCOS hefur áhrif á hormónastarfsemi líkamans, og konur með PCOS hafa oft hærra magn testósteróns, sem leiðir til meiri vöðvamassa og beinþéttni en hjá öðrum konum. Þetta eru eiginleikar sem geta hjálpað til við að auka þrek, úthald og árangur í íþróttum. Og tíðni PCOS meðal afreksíþróttakvenna virðist hærra en meðal kvenna almennt. En það er ekki algilt að aukið testósterón leiði til betri árangurs.

En aukið magn testósteróns þýðir líka konur með PCOS passa ekki alltaf inn í staðlaðar hugmyndir um kvenleika:
  • Sumar konur með PCOS eru með skegg.
  • Sumar konur með PCOS eru vöðvastæltar.
  • Sumar konur með PCOS eru með þunnt hár eða skallabletti.
  • Sumar konur með PCOS eru með sportrönd.

Hættum að troða konum í þrönga kassa staðalímynda.
Konur eru allskonar. 

Og fögnum árangri íþróttakvenna! 

22. september 2026
Eftir að hafa velt þeirri spurningu fyrir okkur er svarið í raun nokkuð einfalt: Við eigum heima þar sem réttindabaráttan fer fram!
16. september 2026
Þegar ég lít til baka og reyni að rifja upp þegar ég greindist með PMOS (þá PCOS) er ein minning sem stendur upp úr.
18. september 2024
Árið 2021 kom út meistararannsókn sem skoðaði reynslu íslenskra kvenna á því að greinas með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS) með áherslu á áhrif sjúkdóms á geðheilbrigði og viðhorf þeirra til heilbrigðisþjónustu. Var sú rannsókn framkv´md ad Rakel Birgisdóttur með leiðsögn frá Elísabetu Hjörleifsdóttur sem hluti af mastersnámi ið háskólann í Akureyri. Notast var við...
16. september 2024
PCOS (e. Polycystic ovary syndrome) er efnaskiptasjúkdómur eða heilkenni sem hefur áhrif á margt í líkamanum, veldur hormónaóreglu og getur ...
13. ágúst 2024
Hér má sjá þau sem hlaupa fyrir PCOS Samtök Íslands í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 24. ágúst
19. maí 2024
Ný stjórn PCOS Samtaka Íslands tók til starfa fyrr á árinu.
16. september 2023
Kæri lesandi, vissir þú að á Íslandi gætu verið um 25000 einstaklingar með PCOS en aðeins um 7500 af þeim veit af því?
3. febrúar 2023
Jæja, þá er megrunarmánuðurinn janúar (megrúnar?) búinn og best að snúa sér að næsta málefni: fitufordóma-febrúar.
24. september 2022
Undanfarin misseri hafa réttindi kvenna yfir eigin líkama verið skert á dramatískan hátt víðsvegar um heiminn.
6. september 2022
September er mánuður vitundarvakningar um PCOS