Hvað er PMOS?
PMOS stendur fyrir polyendocrine metabolic ovary syndrome.
PMOS er innkirtlasjúkdómur sem veldur hormónaójafnvægi hjá konum.
PMOS er meðal algengustu innkirtlasjúkdóma hjá konum á barneignaraldri og er leiðandi orsök frjósemisvanda.
PMOS fylgir líka fjöldi annarra einkenna sem geta haft líkamleg og andleg áhrif.
3 helstu merki um PMOS
- óreglulegar blæðingar – sem þýðir að eggjastokkarnir losa ekki egg reglulega (egglos)
- of mikið andrógen - mikið magn af „karlkyns“ hormónum í líkamanum, sem getur valdið líkamlegum einkennum eins og auknum hárvexti í andliti eða líkama
- fjölblöðrueggjastokkar - eggjastokkarnir stækka og innihalda vökvafyllta sekki (eggbú) sem umlykja eggin.
Ef þú kannast við 2 af þessu gætir þú verið með PMOS.
Hormón tengd PMOS
Andrógen
Allar konur framleiða andrógen, sem eru stundum kölluð karlhormón.
Framleiðsla andrógena fer að mestu fram í eggjastokkunum.
Of mikið magn andrógenhormóna veldur einkennum eins og auknum hárvexti, bólum og óreglulegum blæðingum.
Insúlín
Þetta hormón gerir líkamanum kleift að taka upp glúkósa (sykur) inn í frumur líkamans fyrir orku.
Hjá sumum konum með PMOS eru insúlínmóttakarnir á frumunum ekki jafnnæmir og þeir ættu að vera. Þetta getur leitt til hækkaðs blóðsykurs. Líkaminn framleiðir þá enn meira insúlín til að reyna að lækka blóðsykurinn.
Of mikið magn insúlíns í blóði getur valdið aukningu á framleiðslu andrógena.
Prógesterón
Skortur á prógesteróni getur leitt til óreglulegra blæðinga.
Nafnið var ruglingslegt
Nafnið á heilkenninu hefur lengi valdið misskilningi. Það var lengi þekkt sem PCOS (fjölblöðrueggjastokkaheilkenni) og kennt við „blöðrur“ sem myndast innan í eggjastokkum.
Þessum blöðrum er oft ruglað saman við blöðrur á eggjastokkum, sem eru annað fyrirbæri. Í PMOS eru þetta í raun ekki raunverulegar blöðrur, heldur óþroskuð eggbú sem ekki hafa þroskast fyrir egglos.
Upphaflega var talið að þessar eggbúsblöðrur væru meginorsök ástandsins, en nú er vitað að þær eru aðeins eitt af mörgum mögulegum einkennum og ekki allar konur með PMOS fá slíkar „blöðrur“. Eldra heitið þótti því misvísandi, sem er ástæðan fyrir því að horfið var frá PCOS og heitið PMOS tekið upp.
Nýtt heiti á heilkennið
12. maí 2026 fékk PCOS nýtt nafn og kallast nú PMOS (Polyendocrine Metabolic Ovarian Syndrome).
Markmið breytingarinnar er að endurspegla betur raunverulegt eðli heilkennisins sem fjölþætts hormóna- og efnaskiptaheilkennis, en ekki eingöngu kvensjúkdóms sem hefur áhrif á frjósemi.
Með nafnabreytingunni vonumst við til að komið verði í veg fyrir þann misskilning og vangreiningar sem hafa tíðkast sem og að hún leiði til betri fræðslu og meðferðum fyrir öll sem lifa með heilkennkenninu
Fjölmörg samtök, bæði heilbrigðisstarfsfólks og hagsmunasamtaka, komu að nafnabreytingunni með það að markmiði að finna nafn á heilkennið sem endurspeglar réttilega flókna þætti heilkennisins. Gert er ráð fyrir því að nafnabreytingin taki þrjú ár og því eru bæði gamla nafnið (PCOS) og nýja (PMOS) í umferð fram að því.
Íslensk þýðing á heilkenninu er í vinnslu.
