Fitufordóma-febrúar

Birtist 3. febrúar 2023 á vísi.is

Jæja, þá er megrunarmánuðurinn janúar (megrúnar?) búinn og best að snúa sér að næsta málefni: fitufordóma-febrúar.

“Eins og við vitum öll þá er fátt verra í þessum heimi en að vera feitur. Að vera feitur ber vott um óheilbrigðan lífstíl, leti, litla sjálfstjórn og jafnvel heimsku.
Og nú eru þessir örvæntingarfullu aumingjar farnir að beita lúalegum aðferðum eins og að nota rándýr megrunarlyf til að grennast. Þvílíkar afætur.”

Ég veit ekki hvort svona umræður fari fram einhvers staðar en það er hugsanlega ekki svo fjarri lagi. Þann 2. febrúar sl. birti Fréttablaðið grein þar sem rætt er um aukningu á sölu svokallaðra megrunarlyfja og fyrir ári síðan birtust fréttir á RÚV þar sem rætt var um aukningu á notkun blóðsykurslækkandi lyfja. Það vill svo til að hér er verið að tala um sömu lyfin og það er nokkuð ljóst að notkun þeirra, síðan þau komu á íslenskan markað fyrir 5 árum, hefur stóraukist. Lyfin eru markaðssett fyrir fólk með sykursýki til að hafa stjórn á blóðsykrinum, en geta líka haft áhrif á þyngdarstjórnun.
Þó lyfin séu markaðssett fyrir sykursjúka hafa þau reynst konum með PCOS vel.

PCOS er heilkenni sem hefur áhrif á efnaskipti líkamans, frjósemi og hormónakerfið. Það hrjáir allt að 20% kvenna en er mjög vangreint. Þetta er flókið erfðatengt heilkenni sem ekki er fyllilega skilið, eins og flest sem lýtur að hormónakerfi kvenna, en ljóst er að hækkað insúlín, sem er partur af PCOS heilkenninu, spilar þar stóra rullu. Einkenni eru margvísleg en þau helstu eru óreglulegar blæðingar, einkennandi útlit á eggjastokkum við ómskoðun og merki um aukin androgen áhrif á húð s.s bólur og aukinn hárvöxtur. Heilkennið veldur einnig verulegri aukinni áhættu á ófrjósemi, sykursýki 2, háum blóðþrýstingi, hjarta- og æðasjúkdómum og krabbameini. Til að halda einkennum PCOS niðri er mikilvægt að hafa stjórn á blóðsykrinum og að halda sér í kjörþyngd getur líka haft jákvæð áhrif á einkenni. Við sem erum með PCOS vitum að þetta er hægara sagt en gert, en konur með PCOS eiga margar hverjar einmitt mjög erfitt með þyngdarstjórnun og að léttast. Stór partur kvenna með PCOS þróa með sér insúlínviðnám og er um 75% kvenna með PCOS í yfirþyngd. Konur með PCOS eru auk þess mun líklegri til að þróa með sér átröskun en aðrar konur. Því getur fylgt neikvæð líkamsímynd og óheilbrigt samband við mat, eitthvað sem erfitt er að tækla, sérstaklega þegar aðgengi að geðheilbrigðismálum er ekki betra en raun ber vitni á Íslandi en enginn skortur virðist vera á fitufordómum, m.a. hjá heilbrigðisstarfsfólki.

Þessi svokölluðu megrunarlyf hafa hjálpað konum með PCOS að hafa stjórn á blóðsykri og halda niðri PCOS einkennum. Í sumum tilfellum hafa þau líka hjálpað við þyngdarstjórnun en það er þó ekki algilt.

Ég fagna því að Fréttablaðið skuli sýna áhuga á verkferlum í kringum ávísanir þessara lyfja með því að senda fyrirspurn á Landlækni, þó mér finnist líklegt að sú fyrirspurn hafi verið send með það í huga að fletta ofan af nýju TikTok megrunaræði landans. Á meðan blaðamenn Fréttablaðsins bíða svara frá Landlækni má ég til með að benda á að einungis hluti þeirra sem er ávísað lyfinu fær það niðurgreitt frá Tryggingastofnun. Svo virðist sem eingöngu notendur greindir með sykursýki fái niðurgreiðslu en aðrir ekki. Jafnvel þó lyfið gagnist mun breiðari hópi og sé einmitt líka notað sem fyrirbyggjandi aðgerð gegn sykursýki hjá t.d. PCOS konum með insúlín viðnám.

Þetta eru ný lyf á markaði sem virðast hjálpa breiðum hópi fólks. Það er ekkert óeðlilegt við að það sé mikil aukning á notkun nýrra lyfja milli ára og í raun væri annað óeðlilegt. Ég frábið mér umræðu um að „vinsældirnar“ séu byggðar á auglýsingum á TikTok frekar en góðum áhrifum á heilsu fólks.

Kæru fjölmiðlar, nú hafið þið mælt með megrunum í janúar, fitufordómum í febrúar. Hvernig væri að mæla með (sjálfs)mildi í mars?

22. september 2026
Eftir að hafa velt þeirri spurningu fyrir okkur er svarið í raun nokkuð einfalt: Við eigum heima þar sem réttindabaráttan fer fram!
16. september 2026
Þegar ég lít til baka og reyni að rifja upp þegar ég greindist með PMOS (þá PCOS) er ein minning sem stendur upp úr.
18. september 2024
Árið 2021 kom út meistararannsókn sem skoðaði reynslu íslenskra kvenna á því að greinas með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS) með áherslu á áhrif sjúkdóms á geðheilbrigði og viðhorf þeirra til heilbrigðisþjónustu. Var sú rannsókn framkv´md ad Rakel Birgisdóttur með leiðsögn frá Elísabetu Hjörleifsdóttur sem hluti af mastersnámi ið háskólann í Akureyri. Notast var við...
16. september 2024
PCOS (e. Polycystic ovary syndrome) er efnaskiptasjúkdómur eða heilkenni sem hefur áhrif á margt í líkamanum, veldur hormónaóreglu og getur ...
13. ágúst 2024
Hér má sjá þau sem hlaupa fyrir PCOS Samtök Íslands í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 24. ágúst
9. ágúst 2024
Undanfarið hefur mikið verið rætt um íþróttakonur á Ólympíuleikunum: hvort íþróttakonur hafi „of mikið“ testósterón ...
19. maí 2024
Ný stjórn PCOS Samtaka Íslands tók til starfa fyrr á árinu.
16. september 2023
Kæri lesandi, vissir þú að á Íslandi gætu verið um 25000 einstaklingar með PCOS en aðeins um 7500 af þeim veit af því?
24. september 2022
Undanfarin misseri hafa réttindi kvenna yfir eigin líkama verið skert á dramatískan hátt víðsvegar um heiminn.
6. september 2022
September er mánuður vitundarvakningar um PCOS