Ert þú með PCOS
September er mánuður vitundarvakningar um PCOS

Þessi pisill birtist fyrst 6. september 2022 á vísi.is
Löngu tímabær PCOS samtök Íslands voru stofnuð haustið 2021. Tilgangur félagsins er að veita einstaklingum með einkenni PCOS og aðstandendum þeirra stuðning og fræðslu, auk þess að bæta aðgengi einstaklinga sem greinast með PCOS að upplýsingum um réttindi þeirra og möguleg meðferðarúrræði. Þá er markmið félagsins að stuðla að aukinni almennri þekkingu á PCOS meðal almennings, fagaðila og yfirvalda. Félagið hefur nú þegar stigið sín fyrstu skref í þessum efnum og er með stór framtíðarplön.
September er vitundarvakningarmánuður um PCOS (e. International PCOS awareness month) og nú viljum við fá þig með okkur í lið. Við verðum að breyta því að stór hluti þjóðarinnar hafi ekki heyrt minnst á einn algengasta innkirtlasjúkdóm sem hrjáir konur. Það er ekki boðlegt að konur með PCOS fái ekki heilbrigðisþjónustu við hæfi, sökum þess að fagfólk hefur ekki nægilega djúpstæðan skilning á vandamálinu. Nauðsynlegt er að konur með PCOS fái viðunandi upplýsingar um einkennni PCOS og hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér. Við hvetjum þig til að kynna þér hvað PCOS er og fylgjast með störfum þessa nýstofnaða en öfluga félags.
Hægt er að fylgjast með störfum félagsins á heimasíðu og samfélagsmiðlum þess. Þar er einnig að finna gagnlegar upplýsingar, s.s. um einkenni PCOS.
Ragnhildur Gunnarsdóttir er formaður PCOS samtaka Íslands og þessi grein fjallar um PCOS og að september sé vitundarvakningarmánuður um PCOS.

Árið 2021 kom út meistararannsókn sem skoðaði reynslu íslenskra kvenna á því að greinas með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS) með áherslu á áhrif sjúkdóms á geðheilbrigði og viðhorf þeirra til heilbrigðisþjónustu. Var sú rannsókn framkv´md ad Rakel Birgisdóttur með leiðsögn frá Elísabetu Hjörleifsdóttur sem hluti af mastersnámi ið háskólann í Akureyri. Notast var við...




